Þetta er mín síða
Ég heiti Hákon Valur
Ég fæddist þriðjudaginn 12.október.2004 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri klukkann 19:06. Ég var 3390gr, 52 cm og 13.5 mörk. Ég var með dökkt og mikið hár og blá augu. Þó svo að ég hafi nú tekið minn tíma (19 tímar) í að koma í heiminn þá er ekki hægt að segja annað en að ég sé á hraðferð núna. Frá fyrsta degi hef ég verið mjög vel vakandi, ég hef svo mikið að segja og það er svo mikið sem ég þarf að skoða. Við fyrstu sýn líktist ég pabba mínum, svo varð ég alveg eins og mamma en núna er ég bara ég sjálfur.
Ég er mjög ríkur lítill drengur því að ég á stóra fjölskyldu sem þykir svo vænt um mig. Mamma mín heitir Ingunn Ósk Svavarsdóttir (78) og pabbi minn heitir Sigurður Ingi Friðriksson (72). Móðuramma mín heitir Brynhildur Pálsdóttir og móðurafi heitir Svavar Harðarson. Föðuramma mín heitir Guðrún Björk Pétursdóttir og föðurafi heitir Friðrik Gylfi Traustason. Mamma mín á tvo bræður en pabbi á þrjá bræður og þrjár systur. Einnig á ég þrjár langömmur og einn langafa. Þetta er alveg rosalega stór og góð fjölskyda.
Bænir mínar
Vertu Guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiðir mig út og inn
svo allri synd ég hafni.
'I voða, vanda og þraut
vel ég þig förunaut,
yfir mér virstu vaka
og vara á mér taka.
Jesús mér fylgi í friði
með fögru englaliði.
Góði guð, ég elska þig,
þökk sé þér, sem leiðir mig.
Aldrei bregst þín elskan heita,
til þín Guð, er gott að leita.